Í nóvember jókst kortavelta erlendra ferðamanna á Íslandi um 8,4% frá síðasta ári, og nam heildarveltan 15,6 milljörðum íslenskra króna. Hlutfallslega aukningin er þó mun meiri í raun en færsluhirðing korta innlendra flugfélaga hefur undanfarið ár færst frá innlendum færsluhirðum og því horfið úr þeim tölum sem hér eru birtar.

Þannig var aukningin 18,2% ef litið er fram hjá flugþjónustu en það jafngildir 1,1% aukningu í kortaveltu á mann á föstu gengi. Heildarveltan án flugþjónustu var um 15 milljarðar króna í nóvember síðastliðnum.

Verslunin nam 2,4 milljörðum

Í verslun jókst erlenda kortaveltan um 17,5% milli ára, og nam hún 2,4 milljörðum króna í nóvember, þar af var aukningin mest í gjafa og minjagripaverslunum, eða um 45% frá sama mánuði í fyrra.

Í flokknum önnur verslun var aukningin 20,8%, en þar er ýmis konar sérvara innifalin. Veltuaukning þessara tveggja flokka samanlagt frá nóvember í fyrra nemur 218 milljónum. Hækkunin er nokkuð rífleg en gengi krónunnar hefur lækkað um 12,7% á sama tímabili og kaupmáttur ferðamanna hérlendis þar með hækkað.

Að mati Rannsóknarseturs verslunarinnar er hugsanlegt að með hagstæðara gengi hafi erlendir ferðamenn ákveðið að kaupa eitthvað til jólanna hérlendis, líkt og minjagripi fryri vini og vandamenn. Þá jókst erlend kortavelta dagvöruverslana um 10,7% í nóvember samanborið við nóvember í fyrra.

Veltan í gistingu og ferðaþjónustu eykst um fimmtung

Greiðslukortavelta í gistiþjónustu jókst um 18,7% á milli ára í nóvember en krónutöluhækkunin nam tæpum 573 milljónum króna. Mest var aukningin í hótelgistingu, sem kemur vart á óvart sé tekið mið af árstíma. Samkvæmt tölum Ferðamálastofu fjölgaði ferðamönnum um 3,7% á milli ára í nóvember á meðan verðlagshækkun gistingar samkvæmt Hagstofunni var tæpt 1% frá fyrra ári.

Þá fjölgaði gistináttum samkvæmt Hagstofunni aðeins lítillega, eða um 1% á milli ára í liðnum mánuði. Ein skýring á hærri vexti greiðslukortaveltu en fjölgun gistinátta felst í því að margir gististaðir verðleggja og selja þjónustu sína í erlendum gjaldmiðli en líkt og áður kom fram hefur gengi krónunnar gefið talsvert eftir.

Velta erlendra greiðslukorta í flokknum ýmis ferðaþjónusta, sem nær yfir hinar ýmsu skipulögðu ferðir, jókst um 22,1% í nóvember samanborið við fyrra ár. Samkvæmt Veðurstofu Íslands var tíðarfar í nóvember síðastliðnum almennt nokkuð gott, snjólítið var á flestum stöðum og fremur hlýtt í veðri. Sem gæti hafa ýtt undir meiri veltu í flokknum.

Meiri veitingar, eldsneyti og bílaleiga

Kortavelta í flokki veitingaþjónustu hækkaði í nóvember síðastliðnum um 16,5% á milli ára. Þá jókst erlend kortavelta í sölu eldsneytis talsvert á milli ára, var veltan 25,4% hærri í nóvember í ár, samanborið við fyrra ár.

Eldsneytisverð hefur verið að hækka á árinu sem er að líða, það er þó til marks um meira umfang að greiðslukortavelta í flokki bílaleiga hækkaði einnig í nóvember síðastliðnum, um 9,5% á milli ára.