Gífurleg viðskipti voru með hlutabréf í Kaupþing [ KAUP ] fyrir stundu þegar seld voru bréf í félaginu að andvirði um 5,9 milljarða.

Um er að ræða 7,6 milljón hluti á genginu 775 en meðalgengi Kaupþings í dag er 772. Ekki er gefið upp hverjir standa að viðskiptunum.

Kaupþing hefur það sem af er degi lækkað um 1% í Kauphöllinni. Velta með hlutabréf í Kaupþing er nú um 6,3 milljarðar.

Dagurinn hefur annars verið nokkuð rólegur í Kauphöllinni en Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 0,5%.