Jólaverslunin var slök í Bandaríkjunum þrátt fyrir lækkun á vöruverði fyrir jólin. Sala minnkaði í flestum vöruflokkum, samkvæmt nýjum tölum frá MasterCard að sögn WSJ. Heildarvelta í verslunum, að undanskildum bílum, féll um 5,5% í nóvember og um 8% í desember frá sömu mánuðum í fyrra.
Ef horft er framhjá samdrætti í sölu á bensíni er samdrátturinn minni, 2,5% í nóvember og 4% í desember. 40% verðlækkun á bensíni átti sinn þátt í að heildarveltan lækkaði jafn mikið og raun ber vitni.
Spár höfðu gert ráð fyrir mun betri jólasölu, eða frá 1% minnkun til 2,2% aukningar, að sögn WSJ.
Samdrátturinn var mestur í lúxusvarningi, eða 21,2%. Sala á slíkum varningi jókst hins vegar um 7,5% í fyrra.