Kaupfélag Suðurnesja áætlar að reisa verslunar- og þjónustukjarna skammt frá Keflavíkurflugvelli. Um er að ræða fyrsta stóra uppbyggingarverkefnið utan flugvallarsvæðisins eftir að ferðamönnum til landsins hóf að fjölga verulega fyrir örfáum árum.

Gert er ráð fyrir því að á annað hundrað manns muni starfa í kjarnanum, sem hefur fengið nafnið Rósaelstorg. Þjónustukjarninn verður á 20 þúsund fermetra lóð við síðasta hringtorgið áður en komið er að flugstöðinni.

Í tilkynningu um byggingu kjarnans segir að vegna fjölgunar erlendra ferðamanna hér á landi hefur því verið spáð að framundan sé mikil uppbygging meðfram Reykjanesbrautinni, sérstaklega í næsta nágrenni vallarins. Með byggingu Rósaselstorgs má segja að sú þróun sé hafin.

Skúli Skúlason, stjórnarformaður Kaupfélags Suðurnesja:

„Sú mikla aukning sem orðið hefur á umsvifunum í flugstöðinni kallar á mikla uppbyggingu, bæði á flugvellinum og í næsta nágrenni hans. Ekki aðeins hefur fjöldi ferðamanna þrefaldast á skömmum tíma heldur hefur starfsmönnum sem sækja vinnu í flugstöðinni fjölgað um mörg hundruð. Þarna starfa í dag tvö þúsund manns og um þetta ákveðna hringtorg fara nær allir ferðamennirnir okkar, bæði þegar þeir koma til landsins og þegar þeir fara. Rósaselstorgi er ætlað að þjóna mörgum ólíkum hópum s.s. ferðamönnum og starfsfólki flugstöðvarinnar en einnig þeim fjölmörgu sem útlit er fyrir að starfa muni í Helguvík. Tilkoma þess mun einnig vonandi verða til þess að fleiri gefa sér tíma til að skoða það sem er í boði á svæðinu áður en haldið er áfram til höfuðborgarinnar eða til annarra landshluta. Kaupfélag Suðurnesja á og rekur hátt í fimmtíu verslunarhúsnæði um land allt og við teljum okkur því vera réttan aðila til að ráðast í þetta brýna verkefni að bæta framboð verslunar og þjónustu á þessum stað.“