Hans Petersen, sem hefur verið leiðandi í framköllun og sölu á ljósmyndavörum sl. 100 ár og Strax Holdings, sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu á farsímabúnaði og rekur m.a. Farsímalagerinn.is, hafa tilkynnt sameiginlegar breytingar á rekstri félaganna.
Nýtt félag HP Farsímalagerinn ehf. mun frá og með 1. apríl n.k. taka yfir alla smásölu Hans Petersen hf og alla starfsemi Strax Holdings á Íslandi sem rekin hefur verið í gegnum hlutafélagið Strax ehf. Hans Petersen hf mun eftir sem áður stunda heildsölurekstur líkt og verið hefur.
Áætluð velta sameinaðs félag um 700milljónir. Sex verslanir á höfuðborgarsvæðinu.
Sameinað félag, HP Farsímalagerinn ehf., mun verða leiðandi í framköllun og sölu á ljósmynda- og farsímabúnaði á Íslandi með 6 verslanir á höfuðborgarsvæðinu og áætlaða ársveltu um 700 milljónir króna 2007. Í kjölfarið munu núverandi verslanir Hans Petersen breyta um útlit til að endurspegla nýjar áherslur og nýtt sameinað félag.
Kjartan Örn Sigurðsson ráðin framkvæmdastjóri HP Farsímalagersins ehf.
Stjórn hins nýja félags munu skipa Ólafur Steinarsson, forstjóri Plastprents, Steingrímur Pétursson, framkvæmdastjóri Sjafnar fjárfestingafélags og Guðmundur Pálmason framkvæmdastjóri Strax Holdings. Kjartan Örn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Strax ehf, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri HP Farsímalagersins. Kjartan hefur áður starfað sem framkvæmdastjóri Strax í Bretlandi.
Kjartan Örn Sigurðsson, framkvæmdastjóri HP Farsímalagersins, segir samlegðaráhrif sameiningunnar augljós: ?Tækninni hefur fleygt fram á örskömmum tíma og markaðurinn hefur breyst til muna. Stafræna byltingin hefur tekið öll völd og farsímar og myndavélar eru orðin að einu og sama tækinu. Nýtt félag mun hafa uppá að bjóða mikið framboð af farsímum og myndavélum sem mun styrkja við framköllunarþjónustu félagsins. Þá hafa bæði félögin mikla sérfræðiþekkingu, hvort á sínu sviði, sem mun sameinast og skapa einstakt tækifæri til að byggja upp öflugt verslunar og þjónustu fyrirtæki með heildar- stafrænar lausnir bæði í framköllun og búnaði. Þá er ætlun okkar að bjóða til sölu þjónustu allra farsímafélaga auk sölu á ADSL tengingum og annarri virðisaukandi þjónustu.?
Um Strax: Strax ehf. er dótturfélag Strax Holdings. Strax Holdings var stofnað árið 1996 og er með rekstur í 14 löndum í fjórum heimsálfum. Strax ehf. hefur rekið heildsölu á Íslandi síðan í júní 2006 og smásölueiningu undir nafni Farsímlagersins.is síðan í desember 2006. Kjarnasvið starfseminnar er sala á farsímum og aukahlutum fyrir farsíma. Félagið rekur lagerverslun í Miðhrauni í Garðabæ, Laugaveg 178 og vefverslun www.farsimalagerinn.is auk heildsölu.