Í maímánuði í ár voru gefin út 8.430 íslensk vegabréf, en á sama tíma fyrir ári voru þau 7.635. Er því fjölgun útgefinna vegabréfa 10,4% milli ára.

Ef horft er á fjölda vegabréfa gefna út á síðustu 12 mánuðum, það er frá júní 2015 til maí 2016 er fjöldinn 75.937 en á 12 mánuðum þar á undan var fjöldinn 61.862.

Er fjölgunin þarna á milli 22,75%. Þetta kemur fram á vef þjóðskrár .