Í ár komu 22,7 ferðamenn fyrir hvert starf í ferðaþjónustu, þetta er tvöföld aukning frá því árinu 2010. Því hefur orðið veruleg framleiðniaukning hjá starfandi fólki í ferðaþjónustu á þessu tímabili. Þetta kemur fram í Hagsjá Hagfræðideildar Landsbankans.

Árið 2011 hófst núverandi uppsveifla í komum ferðamanna til landsins og hefur meðalfjöldi starfa í greininni á fyrstu fimm mánuðum hvers árs aukist úr rúmum 10.500 störfum árið 2010 og í 16.700 á þessu ári og nemur aukningin tæpum 60%. Aukningin á fjölda erlendra ferðamanna er þó töluvert meiri eða 225% á þessu tímabili.

Veruleg árstíðarsveifla er enn í komum ferðamanna yfir árið þrátt fyrir að hún hafi verið á undanhaldi síðustu ár. Þessi árstíðarsveifla í komum ferðamanna birtist einnig í árstíðarsveiflu fjölda ferðamanna á hvert starf í ferðaþjónustu. Það helgast af því að ávallt þarf ákveðinn lágmarksfjölda starfandi í greininni sem er lítt háður fjölda ferðamanna. Á lágönn eru ferðamenn tiltölulega fáir á hvert starf en fleiri yfir háönnina. Á síðasta ári komu fæstir ferðamenn á hvert starf í janúar og desember eða um 3,3 í hvoru tilfelli fyrir sig. Yfir háönnina komu um 7,7 ferðamenn á hvert starf í ágúst. Hlutfallslega hefur fjöldi ferðamanna á hvert starf verið að aukast hraðar utan háannar og því hefur framleiðnivöxturinn verið meiri þar.

Mismikil fjölgun starfa eftir undirgreinum ferðaþjónustu

Sé litið á tölur Hagstofunnar um meðalfjölda starfa yfir árið eftir flokkum ferðaþjónustu sést að stærsti hlutinn liggur í veitingasölu- og þjónustu en þar voru um 7.100 stöðugildi á síðasta ári. Næststærsti hlutinn liggur í rekstri gististaða um 4.000 manns. Fjölgunin milli 2010 og 2014 hefur verið hlutfallslega mest í flokknum „ferðaskrifstofur, ferðaskipuleggjendur og bókunarþjónusta“ eða 82% en einnig hefur orðið mikil fjölgun í rekstri gististaða eða 74%. Fjölgunin hefur verið töluvert minni í farþegaflutningum með flugi (26%) og veitingasölu- og þjónustu (28%).

Fleiri heilsársstörf

Það hefur lengi verið eitt af markmiðum íslenskrar ferðaþjónusta að gera stærri hluta hennar að heilsársgrein og búa til fleiri heilsársstörf. Þróunin sýnir að greinin er þar á réttri leið. Á síðasta ári var meðalfjöldi starfa á fyrsta og fjórða ársfjórðungi, sem eru rólegustu fjórðungar ársins, um 15.400 borið saman við 10.750 árið 2010.