Hagnaður Sparisjóðs Vestfirðinga nam 145,2 milljónum króna á fyrri árshelmingi ársins 2006, samanborið við 85 milljóna hagnað á fyrri árshelmingi 2005, segir í fréttatilkynningu.

"Rekstur Sparisjóðs Vestfirðinga gekk vel fyrstu sex mánuði ársins og er hagnaðurinn umfram áætlanir," segir í tilkynningunni.

?Sjóðurinn skilaði 145,2 milljón króna hagnaði á tímabilinu, en umtalsverð hækkun er á markaðsverðbréfum sjóðsins. Stjórnendur sparisjóðsins gera ráð fyrir að afkoma fyrir árið 2006 í heild verði góð."

Arðsemi eigin fjár á sama tíma var 31,1% en hún var 27,7% á árinu 2005. Vaxtatekjur námu alls 474,5 milljónum á tímabilinu og hækkuðu um 23,8% frá sama tímabili árinu áður.

Vaxtagjöld námu 346,5 milljónum og hækkuðu þau um 54,5% frá fyrri árshelmingi 2005.
Hreinar vaxtatekjur sparisjóðsins námu því 141,3 milljónum en þær voru 159,1 milljón á sama tímabili á síðasta ári.

Aðrar rekstrartekjur voru 307 milljónir og hækkuðu um 94,7 milljónir frá fyrri árshelmingi ársins 2005. Hreinar rekstrartekjur námu 448,2 milljónum, en þær námu 371,4 milljónum árið áður.

Rekstrargjöld sparisjóðsins hækkuði í 199,5 milljónir en námu 180,7 milljónir á sama tíma á árinu 2005. Framlag í afskriftarreikning útlána nam 81,4 milljónir, en var 89,2 milljónir á fyrri helming ársins 2005.

Útlán sparisjóðsins námu 6,6 milljörðum króna á fyrri helmingi árins og aukast um 664,1 milljón frá árinu 2005, eða um 11,2 %. Markaðsverðbréf og eignarhlutir í félögum námu 1,63 milljörðum króna og hækka um 20,6%.Allar eignir sparisjóðsins í skráðum verðbréfum eru færðar á markaðsverði.

Eigið fé Sparisjóðs Vestfirðinga í lok tímabilsins nam 1,5 milljörðum króna og víkjandi lán námu 444,8 milljónum, eða samtals 1,6 milljörðum. Eiginfjárhlutfall samkvæmt CAD-reglum er 10,5% en það var 12% um síðustu áramót.