Fyrri hluta dags þá hefur úrvalsvísitala Kauphallar Nasdaq hækkað um 2,18%.

Mesta hækkunin er á bréfum Icelandair, en þau hafa tekið við sér og gengi þeirra hefur hækkað um 3,64% frá opnun markaðar í 499 milljón króna viðskiptum. Einnig er talsverð hækkun á gengi hlutabréfa hjá Marel, en þau hækka um 3,59% í 235 milljón króna viðskiptum það sem af er að degi.

Gengi hlutabréfa í N1 hafa einnig hækkað um 2,25% í 193 milljón króna viðskiptum.