Í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að verulegum árangri hafi verið náð í að komast að niðurstöðu um grundvallaratriði fyrirkomulags til að flýta fyrir greiðslum til breskra sparifjáreigenda Icesave.

Tilkynning forsætisráðuneytisins:

„Fulltrúar Íslands og Bretlands áttu vinsamlegan fund í Reykjavík til að ræða sameiginleg hagsmunamál í tengslum við yfirstandandi neyðarástand á fjármálamörkuðum, með það að markmiði að ná ásættanlegri niðurstöðu fyrir báða aðila.

Verulegum árangri var náð um grundvallaratriði fyrirkomulags til að flýta fyrir greiðslum til sparifjáreigenda í Icesave. Fulltrúar ríkjanna ákváðu að vinna náið saman að lausn annarra viðfangsefna á næstu dögum."