Á fyrstu sex mánuðum ársins 2005 var hagnaður af rekstri Landsvirkjunar 2.008 milljónir króna og handbært fé frá rekstri nam 3.447 milljónum króna. Á sama tíma í fyrra var tap upp á 645 milljónir kr. Helstu nýframkvæmdir á fyrstu sex mánuðum ársins tengdust Kárahnjúkavirkjun. Í lok júní námu heildareignir fyrirtækisins 168,4 milljörðum króna og eiginfjárhlutfall var 31,47%.