Það sem af er degi hefur hlutabréfavísitalan hækkað um 3,69% og er sem stendur í 4 979 stigum. Hæst fór hún í 4 987 stig. Þar vegur þyngst rösk hækkun á bréfum KB banka sem hafa hækkað um 7,17%. Annars hafa öll bréf í Kauphöllinni hækkað í dag fyrir utan bréf í Mosaic Group.