Um 70 manns koma að stofnun nýs verslunarfélags í Árneshreppi, en á föstudaginn var haldinn stofnfundur félags um verslun í norðanverðri Strandasýslu á Vestfjörðum. Verslun lagðist af í hreppnum í haust og hafa íbúar hreppsins þurft að panta vörur og fá þær sendar með flugi, þar sem ekki er mokað að jafnaði í Árneshrepp frá áramótum til 20. mars.

Það er því afar áríðandi að koma á verslun fyrir þá íbúa sem hafa vetursetu í Árneshreppi segir í fréttatilkynningu frá félaginu og hefur fjöldi fólks lýsti yfir stuðningi við verkefnið og áhuga á því að eignast hlutafé í versluninni. Um 4.000.000 kr söfnuðust í hlutafé og eru hluthafar tæplega 70. Sett var 100.000 kr hámark á hlutafjárkaup til að tryggja dreifða eignaraðild.

Stofnfundurinn var haldinn í húsnæði verslunarinnar í Norðurfirði. Það var góð mæting og ríkti bjartsýni á fundinum segir jafnframt í tilkynningunni. Félagið fékk nafnið Verzlunarfjelag Árneshrepps og er stefnt að því að opna með takmarkaðan opnunartíma strax á vormánuðum og síðan með fullum opnunartíma í sumarbyrjun.