Samkvæmt álagningaskrá skattstjórans á Vestfjörðum skilaði einkahlutafélag Ingu Maríu Guðmundsdóttur, Dress up games, mestum hagnaði allra félaga á Vestfjörðum í fyrra.

Samkvæmt upplýsingum frá Ingu Maríu nam hagnaðurinn um 102 milljónum króna. Velgengni vefsíðunnar hennar Ingu Maríu hefur verið ævintýri líkust.  Hún fær um 5,3 milljónir innlita á vefsíðu sína á mánuði en til samanburðar fær mbl.is, umferðarmesti íslenski vefurinn, um 1,35 milljónir innlita á sinn vef á mánuði.

Flettingarnar á síðunni eru svo um 28 milljónir á mánuði miðað við meðaltal síðustu sjö mánaða.

_____________________________

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu í dag. Áskrifendur geta lesið blaðið á pdf-formi hér á vefnum og þeir sem ekki hafa lykilorð geta sótt um það hér .