Vestia, dótturfélag Landsbankans, og Atorka Group hafa selt allt hlutafé sitt í félaginu Parlogis. Kaupandi er Lyfjaþjónustan ehf. Parlogis er dreifingarfyrirtæki á vörum til íslensks heilbrigðiskerfis og er markaðshlutdeild þeirra í dreifingu lyfja yfir 30%, að því er segir í fréttatilkynningu. Kaupverð er 250 milljónir króna.
Bæði Vestia og Atorka selja allan hlut sinn í félaginu en hlutur Vestia var 80% og Atorku 20%. Landsbankinn og Atorka voru helstu lánadrottnar Parlogis. Vegna slæmrar stöðu félagsins breyttu kröfuhafarnir skuldunum í hlutafé. Í tilkynningunni segir að salan nú sé því síðasti hluti endurreisnarferlis.
Steinþór Baldvinsson, framkvæmdarstjóri Vestia, segir í tilkynningunni að salan á Parlogis gefi byr í seglin við undirbúning á áframhaldandi sölu á eignum Vestia. „Parlogis er fyrsta félagið sem selt er úr eignasafni Vestia. Með sölunni hefur Vestia náð að uppfylla meginmarkmið sín um að hámarka endurheimtur við ráðstöfun eigna, lágmarka eignarhaldstíma og gæta jafnræðis og gagnsæis við söluferli. Þessi góði árangur gefur ennfremur byr í seglin við undirbúning á áframhaldandi sölu á eignum félagsins.“