Helstu hlutabréfavísitölur í Asíu hækkuðu eða stóðu því sem næst í stað í nótt. Nikkei-hlutabréfavísitalan hækkaði þó hressilega eða um 1,1% og er sú hækkun rakin til jákvæðra talna um atvinnuástandið í Bandaríkjunum. ASX-vísitalan í Astralíu hækkaði einnig um 1% en Sjanghæ-vísitalan stóð því sem næst í stað. Þegar tæpur klukkutími lifði af viðskiptum í Hong Kong hafði Hang Seng vísitalan lækkað um 0,15%.