Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að vextir á íbúðalánum sjóðsins verða óbreyttir í kjölfar útboðs á íbúðabréfum, segir í fréttatilkynningu.

Útlánsvextir íbúðalána sjóðsins verða áfram 4,95%. Lán með sérstöku uppgreiðsluálagi verða með 0,25% lægri vöxtum eða 4,70%.

Stjórn Íbúðalánasjóðs, samkvæmt lögum, ákvarðar vexti ÍLS-veðbréfa með hliðsjón af fjármögnunarkostnaði í reglulegum útboðum íbúðabréfa og með vegnum fjármagnskostnaði vegna uppgreiddra lána, að viðbættu vaxtaálagi.

Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir því á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 11. ágúst, ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa, segir í tilkynningunni.

Vegnir vextir í útboði íbúðabréfa og uppgreiddra ÍLS-veðbréfa er 4,27%. Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,25%, vegna varasjóðs 0,20% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,25%, samtals 0,70%