Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 1 prósentu. Vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana lækka í 5,5% og hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum í 6,75%. Vextir á lánum gegn veði til sjö daga lækka í 7,0% og daglánavextir í 8,5%.

Væntingar voru á markaðnum um lækkun upp á 0,5 til 0,75% prósenturn. Lækkun nú er því meiri en spáð hafði verið.