Vinstrihreyfingin – grænt framboð telur að hagsmunum Íslands sé best borgið utan Evrópusambandsins. Í ályktun sem samþykkt var á landsfundi flokksins í dag segist flokkurinn hins vegar leggja áherslu á að aðild Íslands að ESB eigi að leiða til lykta í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Í ályktuninni segir að sjálfsagt sé og brýnt að fram fari opin og lýðræðisleg umræða um samskipti Íslands og sambandsins.
„Landsfundur VG leggur áherslu á að aðild íslands að ESB eigi að leiða til lykta í þjóðaratkvæðagreiðslu. Landsfundur telur mikilvægt að fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslu fái rækilega umræðu og að hliðsjón verði höfð af væntanlegum stjórnarskrábreytingum og hvað eðlilegt getur talist þegar afdrifaríkar ákvarðanir eru teknar um framsal og fullveldi."