Helsta breytingin á fylgi flokka ef kosið yrði til Alþingis nú samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup frá fyrri könnun er að Vinstri græn bæta við sig fylgi, eða rétt rúmlega 2 prósentustigum, eftir að hafa dalað nokkuð í síðustu mælingu.
Þá mældist flokkurinn með 10,9% fylgi en í kosningunum 2017 fékk hann 16,9% stuðning. Tæplega 13% segjast myndu kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag. Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka eða á bilinu 0,1-0,8 prósentustig.
Nær 23% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, næstum 15% Samfylkinguna, hartnær 14% Pírata, tæplega 11% Viðreisn, um 10% Miðflokkinn, nánast 8% Framsóknarflokkinn, nálega 4% Sósíalistaflokkinn og tæplega 4% Flokk fólksins.
Tæplega 11% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og 11% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa.
Slétt 56% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.
Niðurstöðurnar eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 4. til 31. ágúst 2020. Heildarúrtaksstærð var 9.479 og þátttökuhlutfall var 51,9%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,3%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.
Helstu niðurstöður:
- Sjálfstæðisflokkurinn: nú 22,8% - í ágúst 23,2%
- Samfylkingin: nú 14,7% - í ágúst 14,8%
- Píratar: nú 13,7% - í ágúst 13,9%
- Vinstri græn: nú 12,6% - í ágúst 10,9%
- Viðreisn: nú 10,6% - í ágúst 10,8%
- Miðflokkurinn: nú 9,9% - í ágúst 10,6%
- Framsóknarflokkurinn: nú 7,9% - í ágúst 7,6%
- Sósíalistaflokkur Íslands: nú 3,9% - í ágúst 3,8%
- Flokkur fólksins: nú 3,6% - í ágúst 4,3%
- Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna B+D+V: nú 43,3% - í ágúst 41,7%
- Styðja ríkisstjórnina: nú 56,0% - í ágúst 55,4%