Þingflokkur VG fær ekki afrit gagna frá hagræðingarhópi ríkisstjórnarinnar. Formleg svar þessa efnis barst þingflokknum frá forsætisráðuneytinu í dag, að því er fram kom í fréttum RÚV.

Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi ráðherra VG, hafði óskaði eftir því fyrir hönd þingflokksins að fá afrit af öllum gögnunum sem hagræðingarhópurinn hafði fengið til sín ásamt lista yfir gesti og viðmælendur. Í beiðinni var vísað til upplýsingalaga til að fá upplýsingarnar.