Vinstrihreyfingin-grænt framboð er með 32% fylgi samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallups. VG er samkvæmt könnuninni sá flokkur sem nýtur mests fylgis um þessar mundir.

Samfylkingin er, skv. könnuninni, með um 31% fylgi og Sjálfstæðisflokkurinn með 21% fylgi.

Þá er fylgi Framsóknarflokksins 8% og fylg Frjálslynda flokksins 3%. Sama hlutfall styður Íslandshreyfinguna-lifandi land.