Stjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs lýsir yfir samstöðu með kjarabaráttu framhaldsskólakennara. Í ályktun frá stjórn VG segir að ljóst sé að framhaldsskólakennarar hafi dregist aftur úr sambærilegum stéttum í kjörum á undanförnum árum. Auk þess hafi rekstur skólanna verið mjög aðþrengdur enda töluvert skorið niður í skólunum fyrir hrun og eftir hrun hafi verið hagrætt þar líkt og í öllum geirum hins opinbera.

„Stjórnin furðar sig á forgangsröðun stjórnvalda og þeirri ákvörðun að afsala almenningi tekjum með því að lækka tekjuskatta, lækka sérstakt veiðigjald, falla frá eðlilegum virðisaukaskatti á ferðaþjónustu o.s.frv.  sem hefði mátt nýta til að hefja uppbyggingu á innviðum á borð við framhaldsskólana. Þá má minna á að hagvöxtur á árinu 2013 varð helmingi meiri en gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi ársins 2014 og því hefðu með réttu átt að skapast tækifæri til uppbyggingar eins og Vinstrihreyfingin – grænt framboð lagði til fyrir kosningar. Ríkisstjórnin hefur þess í stað haldið áfram þaðan sem frá var horfið fyrir hrun með niðurskurði hjá framhaldsskólum í fjárlögum ársins 2014 sem er óskiljanlegt með öllu,“ segir í ályktun frá VG.

Þá segir stjórn VG að einhliða yfirlýsingar menntamálaráðherra um að hann hafi ákveðið að skera niður nám í framhaldsskólum án samráðs við fagfélög kennara,  fækka kennurum og hækka laun þeirra sem eftir sitja séu hvorki til marks um skilning á mikilvægi menntunar eða virðingu fyrir kennarastarfinu.