Á morgun velja Vinstri græn í Reykjavík í fimm efstu sæti framboðslista síns fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Tíu gefa kost á sér.

Valfundurinn hefst klukkan 13 í Skipholti 33, sem er gamli Vinabæ, og verður kosið skriflega í hvert sæti. Meðfylgjandi er  kynningarbæklingur um frambjóðendur og fyrirkomulag valsins.

Búist er við að fundurinn geti staðið fram eftir degi en fréttir af niðurstöðum í hverri kosningu verða birtar jafnóðum á vefsíðu hreyfingarinnar, www.vg.is