Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur lagt fram sameiginlega þingsályktunartillögu um nauðsynlegar aðgerðir vegna alvarlegs ástands efnahagsmála. Tillögurnar, sem eiga að vera komnar til framkvæmda um miðjan júlí, snúa að stöðu heimila, fyrirtækja, fjármálum hins opinbera, atvinnumálum, peningamálastjórn og fjármálakerfinu.
„Aðalatriðið er að menn átti sig á að forgangsraða rétt. Við þurfum trúverðugt plan í ríkisfjármálum og starfhæfa banka með skýrt umboð,“ segir Bjarni í samtali við Viðskiptablaðið aðspurður nánar út í tillögur þingflokksins.
„Þegar þetta er í höfn getum við haft væntingar um að vaxtalækkanir og aðgerðir fyrir heimili og atvinnulíf verði markvissari. Það er einnig brýnt að gleyma sér ekki í þeirri hugmyndafræði að eina leiðin til að auka tekjur ríkisins sé með auknum álögum. Það er hægt að auka tekjur ríkisins með því að skattstofnarnir taki að nýju við sér.“
í samtali við Viðskiptablaðið svarar Bjarni spurningum um tillögur flokksins, niðurskurðarhugmyndir og fleira en þá segir Bjarni jafnframt að störfin þurfi fyrst og fremst að verða til í einkageiranum en ekki hjá hinu opinbera.
Aðspurður segir Bjarni að Sjálfstæðisflokkurinn hafi sofnað á útgjaldaverðinum síðustu árin og fer í stuttu máli yfir hvað flokkurinn hefði mátt gera betur í valdatíð sinni.
_____________________________
Nánar er rætt við Bjarna í Viðskiptablaðinu í dag. Áskrifendur geta lesið blaðið á pdf-formi hér á vefnum og þeir sem ekki hafa lykilorð geta sótt um það hér .