Samtök aðila í atvinnurekstri vara við þeirri skattastefnu stjórnvalda að leggja nýjar tegundir gjalda á atvinnureksturinn og hvetja til þess að megináherslan verði lögð á uppbyggingu og sköpun starfa.

Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu Samtaka atvinnulífsins (SA) og Viðskiptaráðs Íslands (VÍ) en nú í vikunni verður fjárlagafrumvarp fyrir árið 2010 kynnt, en þar verður fyrsta skrefið tekið til að draga úr fjárlagahallanum.

„Öllum er ljóst að hið opinbera mun þurfa að gæta mikils aðhalds í rekstri enda gerir áætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins ráð fyrir að rekstur þess verði orðinn sjálfbær að þremur árum liðnum,“ segir í tilkynningunni.

„Framundan blasa því við vandasamar og sársaukafullar ákvarðanir um hvar og hversu mikið verður skorið niður og hvernig skattheimtu skuli háttað í náinni framtíð.“

Samtökin segja að af þeim tveimur valkostum sem stjórnvöld standa frammi fyrir, þ.e. að hækka skatta eða draga úr útgjöldum, sé mjög mikilvægt að stjórnvöld leggi áherslu á seinni leiðina. Í stöðugleikasáttmála vinnumarkaðarins sé kveðið á um að skattar verði lækkandi hlutfall aðlögunaraðgerða eftir yfirstandandi ár og ekki samtals hærra en 45% þeirra fyrir árin 2009-2011.

„Mikilvægt er að við þetta verði staðið,“ segir í tilkynningunni.

„Umtalsvert svigrúm er til hagræðingar í rekstri hins opinbera enda hafa útgjöld þess vaxið mikið á undanförnum árum. Auk þess er alls ekki fyrirséð hver áhrif verulegra skattahækkana yrðu við þær viðkvæmu aðstæður sem ríkja í efnahagslífinu.“

Þá segir jafnframt að til þess að skatttekjur aukist þurfi annað hvort að auka hlutfallslega skattheimtu eða breikka þá skattstofna sem mynda tekjurnar. Óvíst sé hvort skattahækkanir skili hærri skatttekjum þar sem aukin skattbyrði leiði til minnkandi umsvifa og þar af leiðandi minni skattstofna.

Sjá nánar á vef Viðskiptaráðs.