Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,5% og er 5.250 stig hálftíma eftir opnun markaðar, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Veltan nemur 412 milljónum króna.

Flaga Group [ FLAGA ] hefur hækkað um 6,9% í veltu sem nemur 800 þúsund krónum, Kaupþing [ KAUP ] hefur hækkað um 1,1%, Glitnir [ GLB ] hefur hækkað um 0,9%, Spron [ SPRON ] hefur hækkað um 0,6% og Straumur [ STRB ] hefur hækkað um 0,3%.

Teymi [ TEYMI ] hefur lækkað um 1,2%, Exista [ EXISTA ] hefur lækkað um 0,8%, Bakkavör Group [ BAKK ] hefur lækkað um 0,5%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,9% og er 153,8 stig. Gjaldeyrismarkaður opnaði klukkan níu.