Viðskiptaráð Íslands hafnar með öllu þeirri hugmynd að ríkið hefji innflutning á lyfjum og rekstur lyfjaverslunar í beinni samkeppni við einkaaðila, enda sé hugmyndin afturhvarf til fortíðar og í hróplegu misræmi við stefnu stjórnvalda undanfarinn áratug eins og segir í yfirlýsingu VÍ.

Heilbrigðisráðherra lýsti því nýlega yfir að hún sæi ástæðu til að kanna möguleika á því að endurvekja Lyfjaverslun ríkisins í því augnamiði að lækka lyfjaverð. VÍ bendir á að heppilegra væri að líta til reynslu Dana og nýta EES-samninginn til að fá lyfjafyrirtæki til að sækja um markaðsleyfi á skráningu samheitalyfja eða með því að einfalda og draga úr regluverki á lyfjamarkaði þannig að samnýta megi skráningar lyfja á milli landa - án þess að endurvekja Lyfjaverslun ríkisins.