Nordic Entertainment Group (NENT Group) mun sýna landsleiki á vegum Knattspyrnusambands Evrópu í beinni útsendingu í gegnum Viaplay á Íslandi frá og með keppnistímabilinu 2022-2023. Sex ára samkomulag þess efnis nær til 60 íslenskra landsleikja, en samtals verður meira en 1200 leikjum streymt á Viaplay. Þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem UEFA gerir einkaréttarsamning við streymisveitu. Greinir streymisveitar frá þessu í fréttatilkynningu.

„Strákarnir okkar - íslenska landsliðið í knattspyrnu - eru stolt þjóðarinnar á íþróttasviðinu og hafa komist á tvö af síðustu þremur stórmótum. Þeir tóku heiminn með trompi þegar ákafir stuðningsmenn liðsins framkvæmdu víkingaklappið" í stórkostlegum 1-1 jafnteflisleik við Argentínu með Lionel Messi innanborðs á Heimsmeistaramótinu 2018. Ekkert landslið í heiminum á dyggari stuðningsmenn, en 99,8% þjóðarinnar fylgdust með þegar Ísland lagði England að velli á Evrópumótinu 2016,“ segir í fréttatilkynningu.

Samningurinn felur í sér að þegar íslenska landsliðið hefur leik í Þjóðadeildinni 2022 og í undankeppni EM 2024 geta íslenskir áhorfendur fylgst með öllu sem gerist á streymisveitunni Viaplay. Auk íslenska landsliðsins verður Viaplay heimili allra annarra landsleikja í Evrópu frá 2022-2028.

Kaupin á sýningarrétti frá landsleikjum á vegum Knattspyrnusambands Evrópu koma í kjölfarið á kaupunum á sýningarrétti Meistaradeildar Evrópu, Evrópudeildinni og UEFA Conference League .

„Þetta er stór áfangi fyrir okkur og sýnir metnað okkar fyrir alþjóðlegri stækkun Viaplay. Þegar við byrjum að sýna frá íþróttum á Viaplay viljum við verða leiðandi íþróttastöð í viðkomandi landi og sú staðreynd að þetta sé í fyrsta sinn sem Knattspyrnusamband Evrópu gerir einkaréttarsamning við streymisveitu undirstrikar hversu metnaðarfull við erum. Réttinum til að sýna frá íslenska landsliðinu fylgir mikil ábyrgð og munum við leita í 30 ára reynslubanka okkar á Norðurlöndunum til að framleiða og bjóða upp á útsendingar frá þessum leikjum með hætti sem ekki hefur sést áður,“ er haft eftir Anders Jensen, forstjóra og framkvæmdastjóra NENT Group.

„Við erum himinlifandi yfir því að hafa náð samkomulagi um frekara langtíma samstarf með NENT, sem mun, á árunum 2022 til 2028, tryggja íslenska landsliðinu og öðrum evrópskum landsliðum heimili á Viaplay. Þar sem NENT hefur víðtæka reynslu í útsendingum frá knattspyrnuleikjum, erum við sannfærð um að stuðningsmenn íslenska landsliðsins muni fá framúrskarandi umfjöllun um leiki Íslands í undankeppni EM í knattspyrnu 2024, HM 2026 og EM 2028 sem og Þjóðadeild Evrópu ásamt úrslitakeppnum Þjóðadeildarinnar 2023, 2025 og 2027 á þeim fjölmörgu áhorfsmöguleikum sem Viaplay býður upp á,“ segir Guy-Laurent Epstein, yfirmaður markaðsmála hjá UEFA, í tilkynningunni.