Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur í dag, að tillögu Hæstaréttar Íslands, skipað Viðar Má Matthíasson prófessor til að vera varadómari í Hæstarétti Íslands frá 1. janúar 2009.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu.

Viðar Már situr sem varadómari í tímabundnu leyfi Páls Hreinssonar hæstaréttardómara, en Páll gegnir starfi formanns rannsóknarnefndar samkvæmt lögum um rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna og tengdra atburða.