Viðar Þorkelsson, fjármálastjóri 365, tekur við starfi Sveinbjörns Indriðasonar, framkvæmdastjóra fjármálasviðs hjá FL Group. Fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar að Viðar hafi sagt starfi sínu hjá 365 lausu frá og með 15. mars.

Sveinbjörn hefur starfað hjá FL Group frá árinu 1999 en hættir þar störfum á næstu dögum, að eigin ósk.

Viðar tók við fjármálastjórn 365 hf. eftir skiptingu Dagsbrúnar í nóvember 2006, en hafði fyrir það verið fjármálastjóri og aðstoðarforstjóri Dagsbrúnar og þar á undan Vodafone.