Nokkur viðbrögð voru á skuldabréfamarkaði við tilkynningu forseta Íslands um að synja nýsettum lögum um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinga staðfestingu en fjárfestar hafa verið að selja óvertryggð ríkisskuldabréf og kaupa verðtryggð.

Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka í morgun en sem kunnugt er synjaði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands lögunum staðfestingar í morgun.

Þannig hefur krafa óverðtryggðu bréfanna hækkað um 13-26 punkta frá opnun þegar þetta er ritað en krafa þeirra verðtryggðu lækkað um 1-2 punkta.

Greining Íslandsbanka segir viðbrögðin endurspegla að fjárfestar reikni nú með minni lækkun stýrivaxta Seðlabankans í lok janúar, líklegt sé að næstu endurskoðun á áætlun AGS og stjórnvalda verði frestað og að líklegra sé nú en ella að lánshæfi ríkissjóðs verði lækkað.

Þá kemur fram að í Morgunkorni að skuldatryggingaálag ríkissjóðs hafi einnig hækkað nokkuð en hafa verði í huga að sá markaður sé óvirkur og ófullkominn. Engar breytingar hafa þó orðið á gengi krónunnar enda sé gjaldeyrismarkaðurinn einnig afar óvirkur um þessar mundir.