Í vefriti fjármálaráðuneytisins í dag er vakin athygli á því að þróun á fjármálamörkuðum hefur verið neikvæð síðan ráðuneytið birti spá sína og hagvaxtarhorfur því heldur verri. Í því sambandi telur ráðuneytið rétt að minna á tvö mikilvæg atriði. "Í fyrsta lagi er fjármálakerfið á Íslandi talið í grunninn traust, staða ríkissjóðs sterk, starfsemi fyrirtækja mikil og atvinnustig í landinu hátt. Íslenska hagkerfið hefur einnig sýnt eindæma viðnámsþrótt þegar aðstæður á mörkuðum hafa breyst. Í öðru lagi er mikilvægt að hafa í huga að þróunin hér á landi að undanförnu hefur verið mjög háð þróuninni alþjóðlega. Það skiptir því meira máli en oft áður fyrir framvinduna hér á landi hvernig stjórnvöld annars staðar bregðast við ástandinu," segir í vefritinu.

Í vefritinu er einnig bent á að varðandi erlenda áhrifaþætti má nefna að hagfræðingurinn Frederick Mishkin lét frá sér fyrir nokkru skýrslu um forsendur fjármálakreppu. Þar kom fram að oftast er það samspil lítilla gæða útlána og slæmrar lausafjárstöðu sem framkallar slíkar kreppur og nefnir hann Mexíkó árið 1994 og Asíu árið 1996 í því sambandi. Nú er ljóst að þessi atriði eru ástæða vandræða Bandaríkjanna í dag. Ástandið þar hefur jafnframt  áhrif víða um heim og þar á meðal hér á landi. Það sem kannski meiru skiptir er hvað stjórnvöld þar í landi gera til að bregðast við þróuninni áður en hún fær tækifæri til að grafa um sig og framkalla djúpan samdrátt.

Mishkin telur mikilvægt og áhrifaríkt að seðlabanki lands sem upplifir lausafjárskort hafi skýra stefnu um að veita nægu lánsfé til markaðsaðila og lækka vexti að því marki sem verðbólguhorfur í landinu leyfa. Þetta er nákvæmlega það sem seðlabanki Bandaríkjanna hefur gert, en Mishkin er jafnframt stjórnarmaður bankans. Í fyrradag voru stýrivextir þar lækkaðir um 75 grunnpunkta, í 3,5%. Jafnframt hefur bandaríska ríkisstjórnin ákveðið að koma með beina innspýtingu í hagkerfið að jafnvirði 150 milljörðum dollara á árinu.

Nú er ljóst að þróunin á fjármálamörkuðum hefur verið neikvæð síðan spáin var birt og hagvaxtarhorfur því heldur verri.