Margt er líkt með aðdraganda erfiðleika Íslands og Írlands. Viðbrögð stjórnvalda við áfallinu, og þá sér í lagi erfiðleikum bankanna, hafa þó verið um margt ólíkt. Þetta segir í Hagsýn, fréttabréfi efnahags- og viðskiptaráðuneytisins.

Írar hafa nú leitað eftir fjárhagsaðstoð frá ESB og AGS en hún hljóðar upp á allt að 90 milljarða evra. Það jafngildir um 56% af landsframleiðslu Írlands árið 2009. Til samanburðar hljóðar AGS áætlun íslenskra stjórnvalda upp á 37% af landsframleiðslu, að því er kemur fram í Hagsýn.

„Verulegt ójafnvægi byggðist upp í hagkerfum Íslands og Írlands á árunum fyrir hrun með hratt hækkandi raungengi og miklum viðskiptahalla. Skuldsetning hagkerfanna og hraður vöxtur og umbreyting bankakerfa, sem er eitt einkenni fjármálakreppa um allan heim, var knúinn áfram af ódýru fjármagni. Aukið lánsfjármagn skilaði sér í miklu framboði af húsnæðislánum með hækkandi veðsetningarhlutfalli og minni kröfum til lántaka, sem var meðal orsaka fasteignabólu í báðum ríkjunum. Atvinnuleysi jókst, skuldir hækkuðu, landsframleiðsla dróst saman, fasteignaverð lækkaði og mörg heimili sátu uppi með yfirveðsett húsnæði,“ segir í Hagsýn.

Staðan ólík

Segir að staðan sé þó ólík. „Á meðan Ísland standi frammi fyrir banka- og gjaldeyriskreppu þá séu vandræði Íra fyrst og fremst afleiðing bankakreppu. Helsta muninn á viðbrögðum írskra og íslenskra stjórnvalda má finna í ólíkum viðbrögðum við fallandi bankakerfi. Á Íslandi voru sett neyðarlög, sem gerðu stjórnvöldum kleift að skilja erlendar skuldir og eignir eftir í gjaldþrota bönkum og stofna nýja á grunni þeirra...Á Írlandi voru viðbrögðin af öðrum toga. Írsk stjórnvöld gáfu út ótakmarkaða ríkisábyrgð á innistæður (e. blanket guarantee) og skuldbundu sig til að veita bönkunum fjárhagslegan stuðning. Ríkið tók þar með fulla ábyrgð á bönkunum svo að erfiðara er að skilja á milli erfiðleika bankanna og ríkissjóðs. Óvissan um endurfjármögnun bankanna og getu ríkisins til þess að standa við þær skuldbindingar sínar eru helstu ástæður þess að írska kreppan hefur dregist á langinn og stjórnvöld leita til AGS nú, tveimur árum á eftir Íslandi.“

Hagsýn má lesa hér .