Á fyrsta ársfjórðungi seldist fatalína Victoriu Beckham fyrir 15 milljónir punda sem er 70% aukning frá árinu áður. Gert er ráð fyrir að sala ársins verði meira en 60 milljónir punda eða sem nemur tæpum 11 milljörðum króna.

Victoria hefur einnig þróað ódýrari vörulínu, Victoria by Victoria Beckham, sem á að auka söluna enn frekar.

Vörulína Victoríu kom fyrst á markað árið 2008 þar sem aðeins örfáar flíkur voru í boði en nú hefur hún einnig hannað aukahluti, þ.a.m. tösku sem kostar heil 18 þúsund pund.

Victoria Beckham
Victoria Beckham
© Aðsend mynd (AÐSEND)