„Ég hugsa að við stoppum ekkert þarna,“ segir Daníel Kári Stefánsson, framkvæmdastjóri Joe & the Juice. Þriðji staðurinn undir merkjum safastaðarins opnaði í World Class í Laugum í dag.

Gert er ráð fyrir að starfsmenn verði um tíu í um fimm 100% stöðugildum.

Félagið Joe Ísland – Laugar ehf. heldur utan um rekstur safastaðarins í Laugum. Stofnendur félagsins eru félögin Joe Ísland ehf., sem rekur safastaðina hér á landi, og Laugar ehf., sem á World Class. Formaður stjórnar Joe Ísland – Laugar er Birgir Þór Bieltvedt, eigandi Dominos. Aðrir stjórnendur eru m.a. þau Bjössi og Dísa í World Class.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast pdf-útgáfu af blaðinu með því að smella á hlekkinn Tölublöð .