Yfir 2000 flytjendur komu fram á fjölmörgum sviðum í Hörpu í desember sl. og var helmingur þeirra börn og ungmenni segir í fréttatilkynningu frá tónlistar- og rástefnuhúsinu. Haldnir voru rúmlega 60 tónleikar auk annarra og fjölbreyttra viðburða sem drógu mikinn fjölda gesta í húsið.

Harpa tók einnig á móti 150 leikskólabörnum sem komu í skipulagðar heimsóknir, Hringskonur héldu sitt árvissa jólakaffi til að safna fé fyrir Barnaspítala Hringsins, Sinfónuhljómsveit Íslands lék m.a. á opnum tónleikum fyrir flóttafólk og starfsfólk Rauða kross Íslands og Gamlárshlaup ÍR var ræst í Hörpu svo fátt eitt sé nefnt.

Gestafjöldinn fór vel yfir 200.000 gesti þennan eina mánuð, sem er tvöföldun á milli ára.

„Eftir að hafa tekið þetta saman er hægt að staðfesta að desember var viðburðaríkasti mánuðurinn frá opnun Hörpu og líklega hafa heldur ekki komið jafn margir fram í húsinu á einum mánuði,“ segir Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu.

„Jólatónleikar og aðrir tónlistarviðburðir af öllum gerðum, heil listahátíð, fundir, móttökur, verðlaunaathafnir, sjónvarpsútsendingar, útskriftir og jafnvel íþróttaviðburðir fylltu húsið frá morgni til kvölds og það var einstaklega ánægjulegt hvað allt gekk vel upp.“

Segir Svanhildur að áfram verði haldið með alls konar tilraunir með samstarfsaðilum hússins til að laða að gesti og nýta húsnæðið sem best fyrir alls konar fólk og alla aldurshópa.