Unnið er að því að Herjólfur hefji svo fljótt sem kostur er aftur siglingar milli Vestmannaeyja og lands eftir að ljóst var að varahlutir í gír skipsins berast ekki fyrr en í fyrsta lagi undir lok september og að ekki fengist undanþága fyrir norsku ferjuna Röst til að sigla í Landeyjahöfn í október. Herjólfur verður tilbúinn til siglinga fyrir þann tíma að því er kemur fram ú fréttatilkynningu á vef Vegagerðarinnar .

Síðan í byrjun þessarar viku hefur Herjólfur verið í viðgerð í Hafnarfirði og svipað skip, norska ferjan Röst, hefur sinnt siglingum í Landeyjahöfn á meðan. Það er nú þegar ljóst að það hefur ekki fengist leyfi fyrir Röst til siglinga í Þorlákshöfn og ekki í Landeyjahöfn eftir 30. september var reynt að flýta sem kostur er viðgerð á Herjólfi.

„Eimskip er rekstraraðili Herjólfs og samningsbundinn Vegagerðinni í þurrleigusamningi til að annast allan  rekstur skipsins og sinna viðhaldi þess og viðgerðum. Undirverktaki erlendis hafði lofað Eimskip því að varahlutirnir í gírinn yrðu tilbúnir þann 15. september en nú hefur komið í ljós að það verður ekki fyrr en í fyrsta lagi í lok mánaðar.

Reynt var að fá undanþágu fyrir siglingar Rastar í Landeyjahöfn fyrstu dagana í október en norska siglingastofnunin hafnaði þeirri beiðni eiganda skipsins í gær.

Því var sú ákvörðun tekin í beinu framhaldi af því að fresta viðgerðinni og gera Herjólf tilbúinn til siglinga þannig að ekki kæmi til þess að hlé yrði á siglingum til Vestmannaeyja. Starfsmenn Eimskips og viðgerðarmenn á þeirra vegum, sem koma erlendis frá, eru þegar byrjaðir á þessu verki.

Vegagerðin hefur þegar hafið leit að öðru skipi sem mun hafa heimild til að sigla á hafsvæði B og geti þannig siglt í Landeyjahöfn og Þorlákshöfn eftir 1. október, þannig að hægt verði að ljúka síðar við viðgerð Herjólfs,“ segir í tilkynningunni. [...]

Í ljósi þess að höfnun norsku siglingastofnunarinnar á undanþágubeiðni fyrir Röst ásamt ítrekuðum seinkunum á varahlutum í Herjólf hefði leitt af sér ferjusambandsleysi við Vestmannaeyjar í allt að því tvær vikur, er eini augljósi valkosturinn að fresta viðgerðum á Herjólfi þar til síðar í haust. Því er nú unnið að því að koma Herjólfi á ný í haffært ástand, þannig að skipið hefji áætlanasiglingar frá Vestmannaeyjum sem fyrst.