Stjórnmálaflokkurinn Viðreisn hefur auglýst eftir framkvæmdastjóra eftir að Birna Þórarinsdóttir, sem gegnt hafði starfinu frá stofnun flokksins, var ráðin framkvæmdastjóri UNICEF . Þetta kemur fram í tölvupósti til félagsmanna.

Guðlaugur Kristmundsson gegnir starfi framkvæmdastjóra tímabundið en umsóknarfrestur um starfið er út næstkomandi sunnudag 19. apríl.

Í póstinum kemur fram að starfið felur í sér „ábyrgð á daglegum rekstri flokksins, verkefnastjórnun, áætlunum, eftirfylgni og fjárreiðum í samráði við stjórn og framkvæmdastjórn. Framkvæmdastjóri skipuleggur viðburði og fundi í samstarfi við stjórn og svæðafélög.“

Meðal hæfniskrafna eru reynsla í stjórnun og þekking á rekstri, menntun og reynsla sem nýtist í starfi, leiðtogahæfileikar, og fjölbreytt tölvu- og tungumálakunnátta. Þá eru áhugi á stjórnmálum og reynsla af kosningabaráttu sögð gagnleg.