Viðskiptajöfnuður mældist óhagstæður um 43,1 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs samanborið við 46,7 milljarða fjórðunginn á undan. Afgangur af vöruskiptum við útlönd var 18,5 milljarðar en 5,1 milljarða halli var á þjónustuviðskiptum. Jöfnuður þáttatekna var hinsvegar neikvæður um 56,5 ma.kr.

Í tilkynningu frá Seðlabanka Íslands segir að halla á þáttatekjum megi eins og áður að miklu leyti rekja til innlánsstofnana í slitameðferð. Reiknuð gjöld vegna þeirra námu 34,4 milljörðum króna og tekjur 4,1 milljörðum Jöfnuður þáttatekna án áhrifa innlánsstofnana í slitameðferð var óhagstæður um 26,2 milljarða og viðskiptajöfnuður óhagstæður um 12,7 milljarða króna.

Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 4.729 milljörðum króna í lok ársfjórðungsins en skuldir 13.896 ma.kr. Hrein staða við útlönd var því neikvæð um 9.167 milljarða og lækka nettóskuldir um 40 milljarða á milli ársfjórðunga. Að frátöldum innlánsstofnunum í slitameðferð námu eignir þjóðarbúsins 2.897 milljörðum og skuldir 3.681 milljörðum króna og var hrein staða þá neikvæð um 784 milljarða.