Viðskiptajöfnuður mældist óhagstæður um 12,6 milljarða króna á fjórða ársfjórðungi samanborið við 31,7 milljarða hagstæðan jöfnuð fjórðunginn á undan, að því er kemur fram í tölum frá Seðlabankanum. Afgangur af vöruskiptum við útlönd var 27,9 milljarðar en 6,8 milljarða króna halli var á þjónustuviðskiptum. Jöfnuður þáttatekna var aftur á móti neikvæður um 31 milljarð króna. Viðskiptajöfnuður án áhrifa innlánsstofnana í slitameðferð var óhagstæður um 1,5 milljarð samanborið við 51,9 milljarða króna hagstæðan jöfnuð fjórðunginn á undan.

Halli á þáttatekjum er eins og áður að miklu leyti vegna innlánsstofnana í slitameðferð. Reiknuð gjöld vegna þeirra námu 16,3 milljörðum og tekjur um 5,2 milljörðum króna. Neikvæð áhrif innlánsstofnana í slitameðferð á þáttatekjujöfnuð nema 11,1 milljörðum. Jöfnuður þáttatekna án áhrifa þeirra er því óhagstæður um 22,6 milljarða króna.

Hrein staða þjóðarbúsins neikvæð um 1.042 milljarða

Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 4.430 milljörðum í lok ársfjórðungsins en skuldir 13.352 milljörðum króna. Hrein staða við útlönd var því neikvæð um 8.922 milljarða og hækka nettóskuldir um 14,6 milljarða. á milli ársfjórðunga. Að frátöldum innlánsstofnunum í slitameðferð námu eignir þjóðarbúsins 2.453 milljörðum króna og skuldir 3.495 milljörðum og var hrein staða því neikvæð um 1.042 milljarða. Nettóskuldir lækka um 95 milljarða króna á milli ársfjórðunga.