Hin árlegu Viðskiptaverðlaun Viðskiptablaðsins og Frumkvöðlaverðlaun Viðskiptablaðsins voru afhent við hátíðlega athöfn á Grillinu á Hótel Sögu þann 28. des. sl. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, hlaut Viðskiptaverðlaunin í ár en Jón Ágúst Þorsteinsson, stofnandi og forstjóri Marorku, hlaut Frumkvöðlaverðlaunin.

Líkt og fyrri ár var vel mætt í áramótahófið en sama dag kom út áramótatímarit Viðskiptablaðsins, Áramót, og var útgáfu tímaritsins því fagnað samhliða verðlaunaafhendingunni. Í tímaritinu má meðal annars finna viðtöl við verðlaunahafa auk fjölmargs annars efnis. Þetta er sjötta árið í röð sem tímaritið Áramót kemur út en tímaritið í ár er 196 bls. að lengd. Hér á síðunni má sjá ljósmyndir af viðburðinum. Myndirnar tóku Haraldur Guðjónsson og Eva Björk Ægisdóttir.

Árni Páll Árnason, fv. ráðherra, ræðir hér við Hörð Arnarson, forstjóra Landsvirkjunar, og Árna Odd Þórðarson, forstjóra Eyris Invest.

© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, heldur ræðu eftir að hafa tekið við Viðskiptaverðlaunum Viðskiptablaðsins árið 2012.

Jón Ágúst Þorsteinsson, stofnandi og forstjóri Marorku.

© Eva Björk Ægisdóttir (Eva Björk )

Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, Brynja Guðmundsdóttir, forstjóri Gagnavörslunnar, og Sigurborg Gunnarsdóttir, starfsmaður Gagnavörslunnar.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, ræðir hér við Árna Pál Árnason, fv. efnahags- og viðskiptaráðherra.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, ræðir hér við Árna Pál Árnason, fv. efnahags- og viðskiptaráðherra.
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

Viðskiptaverðlaun 2012
Viðskiptaverðlaun 2012
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Arion banka, Arnór Gunnarsson, forstöðumaður hjá Stefni, og Jóhann Georg Möller, sjóðsstjóri hjá Stefni.
Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Arion banka, Arnór Gunnarsson, forstöðumaður hjá Stefni, og Jóhann Georg Möller, sjóðsstjóri hjá Stefni.
© Eva Björk Ægisdóttir (Eva Björk )

Luis E. Arreaga, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka, Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, Helgi Már Björgvinsson, sölu- og markaðsstjóri Icelandair, og Guðni Hreinsson, framkvæmdastjóri Loftleidir Icelandic.