Rekstrarhagnaður ferðaþjónustfyrirtækisins Primera Travel Group hf. nam 1.760 milljónum króna í fyrra. Eigið fé var 35,3 milljónir evra um síðustu áramót og var eiginfjárhlutfall félagsins um 25%.

Viðskiptavild félagsins var færð til bókar á 82,4 milljónir evra þannig að hún nam um 233% af eigin fé en ranglega var sagt í Viðskiptablaðinu að hlutfallið væri 328%. Viðskiptavildin jókst um 6,8 milljónir evra milli ára en tekið skal fram að framkvæmt var virðisrýrnunarpróf á henni um áramótin eins og skylt er.

Skammtímaskuldbindingar Primera Travel Group námu um áramótin 44,5 milljónum evra en veltufjáreignir 19,6 milljónum þannig að veltufjárhlutfall félagsins var þá um 0,44.