Viðskipti í Kauphöll Nasdaq Iceland hefjast aftur klukkan 13:10. Búið er að gera við þær bilanir sem upp komu. Kauphöllin hefur legið niðri það sem af er að degi - vegna tæknilegrar bilunar í hugbúnaði.

Í morgun ollu tæknilegir erfiðleikar töfum á opnun hlutabréfamarkaðar og skuldabréfamarkaðar Nasdaq Iceland. Að loknum lagfæringum voru markaðir opnaðir kl. 13.10 án vandkvæða.

Segir í tilkynningu frá Kauphöllinni.