Hermann Björnsson - Sjóvá
Hermann Björnsson - Sjóvá
© BIG (VB MYND/BIG)

Kauphöll Íslands hefur samþykkt umsókn Sjóvár-Almennra trygginga um töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar. Viðskipti með hluti félagsins munu hefjast þann 11. apríl.

Þann 25. mars sl. samþykkti Kauphöllin umsókn Sjóvár að uppfylltum skilyrðum um dreifingu hlutafjár. Þeim skilyrðum hefur nú verið fullnægt.