Kauphöll Íslands hefur ákveðið að stöðva tímabundið viðskipti með hlutabréf Icelandair Group hf. Ekki eru gefnar skýringar á stöðvuninni en í tilkynningu frá Kauphöllinni segir að önnur tilkynning frá Icelandair Group sé væntanleg.

Fréttastofa RÚV greindi frá því í hádeginu að samningar hefðu náðst við flugliða hjá Icelandair, en eins og fyrr segir liggur ekkert ljóst fyrir á þessari stundu hvort það er ástæðan fyrir inngripum Kauphallarinnar.