Kauphöll Íslands hefur samþykkt umsókn stjórnar Vátryggingafélags Íslands hf. um töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar.

Í tilkynningu segir að samþykkið sé háð því að félagið uppfylli skilyrði reglna fyrir útgefendur fjármálagerninga í Kauphöllinni um dreifingu hlutafjár fyrir skráningardag. Gert er ráð fyrir að fyrsti viðskiptadagur með hluti VÍS á markaði verði 24. apríl næstkomandi en Kauphöllin mun tilkynna um fyrsta viðskiptadag með minnst eins viðskiptadags fyrirvara.