Viðskiptavakt með íbúðabréf Íbúðalánasjóðs hefur verið stöðvuð og mun liggja niðri í dag fimmtudaginn 22. nóvember 2012. Þetta kemur fram í tilkynningu frá kauphölli Íslands, Nasdaq OMX Iceland.

Ástæðan er sögð vera vegna óvissu, sem skapaðist af fréttaflutningi Viðskiptablaðsins í morgun um skilmálabreytingar á Íbúðabréfum. Því hefur verið ákveðið að viðskiptavakt með Íbúðabréf muni liggja niðri í dag. Viðskiptavakt fer af stað með eðlilegum hætti í fyrramálið eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá kauphöllinni.