Heildarhagnaður Nýherja á öðrum ársfjórðungi nam 69 milljónum króna, samanborið við 862 milljóna króna tap á öðrum fjórðungi síðasta árs. Hagnaður á fyrri helmingi þessa árs nam 125 milljónum króna samanborið við 1.012 milljóna tap á sama tíma í fyrra. Kemur þetta fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

EBITDA nam 207 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi og 398 mkr á fyrri árshelmingi, en í fyrra var EBITDA 161 milljón á fyrri ársfjórðungi og 183 milljónir á fyrri helmingi ársins.

Í tilkynningunni er haft eftir Finni Oddssyni, forstjóra Nýherja, að rekstur fyrirtækisins sé að styrkjast og að afkoma á öðrum ársfjórðungi sé í takt við væntingar. Jákvæð afkoma sé hjá öllum félögum samstæðunnar á fyrri helmingi árs.

Hann segir rekstur Applicon á Íslandi stöðugan og að hann skili ágætri afkomu og að hagnaður sé af rekstri Applicon í Svíþjóð, sem séu mikilvæg umskipti eftir taprekstur síðustu ár. Umtalsverður tekjuvöxtur sé áfram hjá TM Software, einkum vegna mikillar sölu á Tempo hugbúnaði, sem nú sé seldur til ríflega 100 landa í gegnum netið. Þessi vöxtur Tempo er fyrirtækinu afar mikilvægur, að sögn Finns. Allar þessar tekjur séu erlendar og hafi aukist um 86% á milli ára. Tæplega helmingur veltu TM Software sé því í erlendri mynt.

Finnur segir að tekjur Nýherja af vörusölu og rekstrarþjónustu á innanlandsmarkaði séu stöðugar en afkoma batni lítillega á milli ára, sem sé í samræmi við væntingar. Gert sé ráð fyrir hóflegum vexti í tekjum og afkomu samstæðunnar á næsta ársfjórðungi.