Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf. (Ræktó) hagnaðist um 125,6 milljónir króna á síðasta ári. Er það mikill viðsnúningur frá fyrra ári þegar félagið tapaði tæpum 55 milljónum króna.

Eignir fyrirtækisins námu 517 milljónum króna í lok árs en skuldir voru 375 millj­ ónir króna. Nam eigið fé fyrirtækisins því 142 milljónum króna.

Ræktó er verktakafyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði jarð­borana. Fyrirtækið er með sjö jarðbora í rekstri sem sinna margvíslegum verkefnum.

25 starfsmenn störfuðu hjá félaginu á síðasta ári og var Trading House ehf. eini hluthafi þess í lok árs.